Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Fyrningarleið?

Sat málþing sem haldið var hér í Eyjum og óska ég þeim aðilum sem að því stóðu til hamingju með þingið. Ég sem andmælandi núverandi ástands s.k. kvótakerfis, sem þjóðin hefur þurft að þola sl. 27 ár. Sjá milljónir streyma út úr greininni  frá þeim sem úthlutað fengu nýtingarrétti að auðlindinni. Getur einhver skýrt það út fyrir mér. að fá nýtingarrétt er það eignaréttur? á sá nýtingarréttur að erfast til þeirra sem aldrei hafa við sjómennsku unnið og í raun ekkert til hans unnið?  MÁLÞINGIÐ VAÐ MJÖG LITAРAF STUÐNINGSMÖNNUM  Á NÚVERANDI ÁSTANDI,  ÞÓ EKKI SÉ MEIRA SAGT.

Ég er ekki sammála þeirri  fyrningarleið sem núverandi stjórnarflokkar boða. Hvers vegna? Ég tel að stefna okkar F.F. hefði náð betri sátt  UM KERFIÐ og  sé sanngjarnari stefna. Því eiga þeir að verða fyrir fyrningu sem hafa alla tíð sótt þann afla sem þeim hefur verið úthlutað? Nýtt þann afla sem nýtingarréttur þeirra stendur til.

 Það á að innkalla kvóta þeirra sem eru búnir að veðsetja óveiddan fisk í sjónum, fram yfir getu og eru í raun gjaldþrota. Innkalla allan kvóta frá þeim sem ekki hafa stundað atvinnu sína og liggja bara við bryggju og leigja frá sér aflaheimildirnar. Það er ólýðandi, óþolandi, og okkur ekki sæmandi sem þjóð tækifæranna. Opna kerfið neðan frá, taka út úr kvóta t.d. löngu, ufsa skötusel og jafnvel ýsu allavega lýsu. Opna kerfið fyrir nýliðum, það á ekki að líðast að ein starfsgrein sé lokuð, enginn endurnýjuð, nema að þú sért fæddur/ fædd inn í arfa vitlaust kerfi.

Hver yrðu viðbrögð t.d. flugmanna, smiða, kennara, hjúkrunarfæðinga, lækna leikskólafólks  og svo má áfram telja, ef réttur til atvinnu væri aðeins hjá þeim sem byrjuðu vinnu á árunum 1980- 1990? Aðrir yrðu bara leiguliðar? Breyta verður kerfinu og burt með núverandi sérfræðinga hjá Hafró., stefna þeirra hefur fengið algjörlega fall-einkunn. Þegar starfsmenn skila ekki vinnu sinni taka þeir pokann sinn og hverfa til annaðra verka. Svo er sagt á sjómannamáli. Kv


Hér er hátíð sjómanna í fullum gangi. Eyjarnar skarta sínu fegursta þeim til heiðurs.

 - Örstutt hugleiðing frá Hönnu Birnu núverandi ritara F.F. Hún tók sæti  á Alþingi 4. feb.2008  fyrir Grétar Mar.
 Kemur hún inn á lífið sem sjómannskonur lifðu og lifa enn í dag, með eiginmenn og oft syni á sjó. Í öllum veðrum sækja þeir fram og koma með björg í bú, hljóðir um erfiðið en stoltir og bera höfuðið hátt, enda undirstaða þess að hér geti þrifist blómlegur sjávarútvegur.
Sjómanns - og stjórnmálakona

Hanna Birna ritari FF.
Ég er sjómannskona búsett í Vestmanneyjum. Það valdi ég sjálf og fór til Vestmannaeyja með Árna Óla mínum, fór frá ættingjum mínum og vinum í Reykjavík. Fjarlægðirnar voru aðrar þá með strjálar ferjusiglingum og flugsamgöngum svo vægt sé til orða tekið. Það var vorið 1963 sem ég fór í mína fyrstu flugferð og stefnan var sett á Eyjar.  Ég var með blóm í farteskinu handa tilvonandi tengdamóður minni, smá kvíði fyrir hinu óþekkta en ástin var öðru yfirsterkari. Síðla sama sumars fór ég á mína fyrstu þjóðhátíð, sem fauk reyndar í orðsins fylgstu merkingu.

 

 Reykjavíkurmærin.
Ég þekkti nú lítið til sjómennsku á þeim tíma en hafði ofurtrú á mínum manni sem var í kennaranámi þá, en sjómennskan varð huga hans yfirsterkari. Hér í Vestmannaeyjum lærði ég að vinna fisk en gat nú reyndar aldrei flakað vel. Var  alls ekki með góða nýtingu og ég fékk að heyra það frá Einari heitnum Hannessyni verkstjóra þeim mikla öðlingi sem er saknað af mörgum. Ég saltaði síld, pakkaði loðnu og loðnuhrognum. Staflaði saltfiskstæðum í Sælahúsinu og gæfa mín gegnum árin var að með mér voru ávallt afskaplega skemmtilegir og hjálplegir vinnufélagar.
Heima var ég að reyta lunda og hamfletta. Verka fýlinn og salta hann niður í tunnu með yfirumsjón og tilsögn tengdaforeldra minna Óla heitins og Önnu Svölu í Suðurgarði. Einnig skar ég af netum heima í bílskúr. Það hefur fylgt mér æ síðan, hugsunin um ráðdeildina, vinnusemina og að gera mikið úr litlu sem  foreldrar og tengdaforeldrar mínir kenndu mér. Þegar tími var til æfði ég og tók þátt í starfi Samkórs Vestmannaeyja og var með í fyrstu plötuútgáfu kórsins. Tróð upp á leiksviði með Leikfélagi Vestmannaeyja og spilaði bridge, reyndar ekki mjög góð en var með.
Skin og skúrir
En lífið var ekki bara rómantískt Eyjalíf, í lífinu hjá mér skiptust á skin og skúrir eins og svo mörgum. Þegar á bjátar er mikilvægt að hafa trú. Eins og fyrr segir þekkti ég lítið til sjómennsku þegar ég ákvað að gerast sjómannskona. En fljótlega tók ég þá ákvörðun að hræðast ekki sjóinn og hafa þá trú númer eitt að maðurinn minn kæmi ávallt heim eftir hvern róður.
Öðruvísi hefði ég ekki getað sinnt þremur börnum, unnið mína vinnu og sinnt mínum áhugamálum. Að lifa lífinu hrædd gengur ekki til lengdar. Sem betur fer hefur hafið verið mér og mínum vinveitt þó að því miður hafa ekki allir verið það lánsamir í kringum okkur.
Hringing síðla mætur.
Síðla nætur í marsmánuði 1975 vaknaði ég við símhringingu sem er mér afar minnisstæð. Addi Óli var þá stýrimaður á Ísleifi Ve. og í símanum var Leifur Ársælsson stórútgerðarmaður er gerði Ísleif út.,, Hanna mín," sagði hann, Ísleifur strandaði við Ingólfshöfða í nótt allt er í lagi með áhöfnina allavega eins og er.
Svo mikla trú hafði ég á að ekkert kæmi fyrir hann Adda minn að ég gat sagt án þess að hugsa, Hann Addi bjargar því. Sem betur fór varð ekki stórslys í þetta skiptið.
Trúin á okkur sjálf og samfélagið.
En við sem eigum ástvini okkar á sjó vitum hvað sjórinn getur gefið og hvað hann getur tekið. Það er okkar tilvera . Höfum trú og framfylgjum henni. Það hefur hjálpar mér og það hjálpar þér líka. Það opnast ávallt aðrir gluggar þegar hinir lokast.
Óska ykkur alls hins besta og eigið gleðilega sjómannahelgi. Hanna Birna. (Grein sem birtist í Gullkistunni sjómannbl. F.F.<)


Nú er ég orðlaus!!!!!!!!!!

Já er er bara orðlaus, eftir allt hanagalið undanfarin misseri og sérlega  í  yfirhananum Steingrími J sem hefur haft hvað æðst um umhyggju og sérúrlausnir til handa þeim sem minna mega sín og allt það blaður sem allir nú þekkja, þá er bráðvandinn leystur með því hjá Háttvirtum Hana að leggja auknar  álögur á þá sem treystu Vinstri Grænum fyrir sinni framtíð.

Það er óbærileg hugsun að núverandi stjórn  sitji áfram. Hún er með gamlar úrsérgegnar lausnir, sem eru alls ekki neinar lausnir. Ég hafði að orði hér heima í kvöld" hvað væri Steingrímur nú búinn að hrópa og kalla  út og suður, já í öllum fjölmiðlum eftir lausnum ef hann sæti ekki nú sjálfur í stjórn með aðalhænunni "heilögu Jóhönnu,, Eftir 30 ára setu hennar á þingi virðist ekkert hafa breyst?

Ég er bara orðlaus og vanmáttug, get alls ekki skilið val kjósenda að koma þessari fagurgalastjórn á.  Hún er algjörlega ráðlaus og stendur ekki undir umbúðunum sjálfum.

En ég vil segja að lokum" Eygló þú stóðst þig vel í dag,, talaðir fyrir stefnu okkar í Frjálslynda fl. og  vonandi verður áframhald á því hjá ykkur Framsóknarmönnum . Ég hef þá trú á meðan þið eruð í stjórnarandstöðu.


Í.B.V vann sinn fyrsta sigur, en ekki þann síðasta.

Til hamingju strákar , og nú upp með sjálfið, þið getið þetta!!!!Wizard

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband